Jahá nú hefur það afsannast að Einstein var snillingur því að
það er Pétur Steinn Guðmannsson sem er snillingur.
Útskýring: Þegar ég kom heim úr vinnunni í dag og var að fara að
henda mér í sturtu ákvað ég nú að vera sniðugur og setja föt í
þvott, vinnufötin og svoleiðis. jæja geri eg það og set í gang og
fer svo eitthvað fram í eldhús og er eitthvað að bardúsa en fer svo
að spá hvar í fjáranum síminn sé nú eiginlega niðurkominn. Hefst
leitin mikla á hinum vanalegu stöðum en síðan rennur það upp fyrir
mér að hann sé kannski bara ennþá í vinnubuxunum. Stekk á
þvottavélina og stoppa, ríf hurðina upp og finn buxurnar og viti
menn er þá ekki síminn bara á sínum stað í símavasanum, blautur og
fínn.
Björgunaraðgerðir eru í gangi as we speak or write, síminn í
frumeindum á ofninum.
Árangur sagður seinna.
Kveðja Pétur Snillingur