Made in sveitin

27.04.2007 18:05:58 / PéturSt

here's johnny

Góðan daginn gott fólk

 

Já það er orðið helvíti langt síðan að maður hefur bloggað, mundi varla passwordið til að komast inn á síðuna. Mætti segja að síðan hafi verið dauð.

 

Líðið gengur sinn vanagang hérna fyrir austan. Mikið búið að vera að gerast í vinnunni og svoleiðis, mér finnst svona merkilegast þegar ég var að aftengja blásaramótor sem er um það bil 0.5MW og þar af leiðandi voru tveir 95q kaplar. Síðan var ég líka að setja upp ljós í stigana sem eru á álvershöfninni, braut örugglega allar þær vinnureglur sem hafa verið settar þarna. Síðan rúntar maður bara þegar ekki er vinna. það er nú ekki svo mikið að gera hérna fyrir austan því er nú ver og miður.

 

Veðrið hérna síðustu daga er búið að vera lygilegt. sól og lítill vindur, heiðskýrt og yndislegt. Manni finnst nú að það ættu að vera reglur sem banna vinnu á svona dögum.

 

En mér dettur ekkert í hug til að skrifa meir

 

Bara gleðilegt sumar öll sömul og bless í bili


» 3 hafa sagt sína skoðun

15.12.2006 23:45:36 / PéturSt

Einstein hvað

Jahá nú hefur það afsannast að Einstein var snillingur því að það er Pétur Steinn Guðmannsson sem er snillingur.

Útskýring: Þegar ég kom heim úr vinnunni í dag og var að fara að henda mér í sturtu ákvað ég nú að vera sniðugur og setja föt í þvott, vinnufötin og svoleiðis. jæja geri eg það og set í gang og fer svo eitthvað fram í eldhús og er eitthvað að bardúsa en fer svo að spá hvar í fjáranum síminn sé nú eiginlega niðurkominn. Hefst leitin mikla á hinum vanalegu stöðum en síðan rennur það upp fyrir mér að hann sé kannski bara ennþá í vinnubuxunum. Stekk á þvottavélina og stoppa, ríf hurðina upp og finn buxurnar og viti menn er þá ekki síminn bara á sínum stað í símavasanum, blautur og fínn.

Björgunaraðgerðir eru í gangi as we speak or write, síminn í frumeindum á ofninum.

Árangur sagður seinna.

Kveðja Pétur Snillingur


» 4 hafa sagt sína skoðun

14.12.2006 10:23:22 / PéturSt

Heitt á könnunni

Já góðan daginn góðir hálsar.

Nú er ég mættur heim eftir smá frí í rvk. Alveg drullugott sko, að geta farið að kúplað sig eiginlega út frá öllu stressi og veseni sem fylgir vinnunni og þannig löguðu. En eitt var þó að bögga mig eins og maður segir víst en það eru Subway staðir. Per sónulega þá elska ég subway eða bara góða samloku, en það sem fer í taugarnar á mér er það að þegar maður stendurí röðinni og horfir á myndir af þessum subway bátum þá eru þeir svo troðnir og vel útilátnir af öllu því góðgæti sem þarna er, en síðan kemur að því að maður er að velja sér álegg og svoleiðis og að sjá þegar þeir eru að raða á bátana og eru greinilega að spara því að það er bara sett einföld röð af öllu og svo svona kjötáleggin þá eru þau sko spöruð. Já þetta fer sko í taugarnar á mér, af hverju getur maður ekki bara fengið bát sem er alveg eins og sá sem er á auglýsingunni án þess að þurfa að borga morðfjár fyrir aukaálegg einhver. Ef þetta eru ekki falskar auglýsingar þá veit ég ekki hvað sko. Já eins og mér finnst nú skyndibitar og þessi óholli matur góður þá verð ég alltaf eitthvað svo svekktur þegar ég fer á svona staði og kaupi  mér eitthvað.

Nú þegar ég horfi út um gluggann þá er þessi fínahlussusnjókoma, blaut og aðisleg, mikið slabb og fínerí, missti mig aðeins þegar ég kom inn á planið hjá verkstæðinu í morgun. Maður verður nú að fara að þroskast upp úr þessu spóli.

En hinsvegar þá fór ég um daginn á neskaupsstað og fékk mér snæðing með félögum mínum, fórum við svo upp í oddskarð og ætluðum a far aað torfærast og leika okkur eins og stórum krökkum sæmir. Jújú ég og Pétur vorum á ofur hiluxnum og fórum að torfærast í snjónum. stoppuðum svo upp í miðri brekku, smá fastir. Þá fer Pétr Steinn Guðmannsson út og ætlar sko að finna eitthvað sniðugt á pallinum til að losa okkur úr þessu klandri. Kom ég þá auga á snjóbretti, greip það og hélt sem leið mín lá ofar í brekkuna. Festi brettið á mig(tek það fram að ég  var bara í gerfigrasskóm) Byrja að renna mér niður og þá runnu nú á mig tvær grímur því aðí fyrsta lagi þá hef ég ekki farið á bretti í meira en tvö ár og í annan stað þá var klikkað harðfeni. Jú ég renn þarna niður á fleygiferð og næ nú að stoppa mig aðeins en nei held þá áfram að renna bara hina leiðina og það endaði bara með einu stóru BOMMMMMMMMMMMMM KKKKKRRRAAAASSSSS og næst sést hr.pétur Steinn renna á bakinu niður restina af brekkunni.
Niðurstaða þessarar tilraunar var sú að menn skulu eigi fara á snjóbretti án réttra skóa og einnig að vera í ekki í gallabuxum og hettupeysu einum klæða. En þetta endaði nú vel, hliðarspikið og bakið svolítið hruflað en þetta var bara svo helvíti gaman.Nú eru það bara jólin sem þykjast vera byrjuðað gægjast í kringum hornið. En hjá okkur vinnandi mönnum þá eru þetta engin jól, þetta lendir bara inn á einhverja helgi og verður bara eins og hver önnur vikuskil nema að maður borðar aðeins betri mat. Maður vonar bara að maður komist í aðeins jólaskap þó að það verði nú ekki nema í klukkutíma eða svo.

En ég er hlaupinn í vinnuna aftur svo að ég verði nú ekki rekinn eða eitthvað.

Kveðja Pétur Steinn Snjókall


» 2 hafa sagt sína skoðun

28.10.2006 18:52:41 / PéturSt

jarðaður

Pff mér finnst það nú svakalegt að allir séu búnir að jarða mann bara

Það er nú ekki mikið að gerast hérna hjá manni en allt gengur víst sinn vanagang sem er bara að vinna og rúnta stöku sinnum, jú það er líka búið að vera smá sjór hérna, setti vetrardekkin undir en þá fór að rigna og það er ekki buið að hætta að rigna síðan og allur snjór að verða farinn og marr keyrir bara um á nöglunum,

En áður en snjórinn fór þá vorum eg, kjartan og kristján upp í oddskarði að slide-a í beygjunum það og svoleiðis smemmtilegheit hérna er smá video sem við bjuggum til upp á oddskarði

http://www.youtube.com/watch?v=nR-iauT7R9c bara copy paste á linkinn

En já þetta er víst nóg í bili og já ég er að fara suður fimmtudaginn 2.nóv kem við á ak

Kveðja
sá dauði

» 3 hafa sagt sína skoðun

28.09.2006 18:21:37 / PéturSt

Vúúúúúúúúúúúúúúúúúúúúúúúúúhú bíllinn minn er kominn upp í 1520km
allir að klappa fyrir þessu

» 5 hafa sagt sína skoðun

25.09.2006 18:36:08 / PéturSt

Bíllinn

myndir komnar af bílnum, segja mér svo hvað ykkur finnst

www.cardomain.com/ride/2465861  bara copy paste
!f̌⩨ъ夨ϧᇘъ

» 4 hafa sagt sína skoðun

18.09.2006 22:38:16 / PéturSt

D

Góða Kvöldið

Ég er kominn austur aftur eftir að hafa farið suður. Ég kom með bílinn minn, svartan subaru legacy árgerð 2007, djöfull er gott að keyra þennan bíl og hann er líka svo flottur, en þar sem að ég kann ekki að setja inn myndir hérna þá verðið þið bara að hafa samband við mig til að sjá mynd eða bara the real deal.

yfir og út
kútur

» 2 hafa sagt sína skoðun

08.09.2006 19:37:40 / PéturSt

s

Góða kvöldið

Það er ekki mikið buið að gerast síðan um verslo að manni finnst, bara vinna og meiri vinna og allt í þeim dúr. Er reyndar búinn að fjárfesta mér í bíl sem að ég fer að ná í suður  fimmtudaginn 14.sept og verð þá staddur á ak annaðhvort 16eða 17.sept þannig að endilega hafa samband eða vera í bandi við mann þegar þar að kemur.

Pétur Steinn

» 2 hafa sagt sína skoðun

07.08.2006 23:27:11 / PéturSt

Verslunarmannahelgin

Góða kvöldið gott fólk

Jæja þá er nú hin margrómaða verslunarmannahelgi loksins búin og vonandi eru allir búnir að skemmta sér konunglega vítt og breitt um landið.

Ég var bara rólegur hérna fyrir austan og skellti mér á Neistaflug, reyndar bara á kvöldin, fyrst var það á föstudagskvöldinu en þá var Í svörtum fötum að spila, ég og doddi fórum yfir á bensanum hans sem er benz e 50 AMG sem að skilar um það bil 360hp með 5L V8 vél.  Það var nú bara ágætt, hitti alveg helling af fólki, bæði austan af landi og bara alls staðar af  landinu. Við skriðum svo aftur yfir á fáskrúðsfjörð fimm um nóttina.
Á laugardaginn vöknuðum við og lögðumst dauðir niður í sófann að horfa á discovery og cartoon network. Síðan fórum við út og fengum okkur að borða á sjoppunni á fásk og í leiðinni keyptum við bón og alls konar hreinsiefni til þess að taka nú benzann í gegn. síðan þurfti doddi að fara að flytja skurðgröfu og bað mig um að koma með á benzanum, við komum við á reyðarfirði til að taka olíu á vörubílinn og bensín á benzann. Síðan fór doddi út á bechtel svæðið og náði í skurðgröfuna og ég beið eftir honum fyrir ofan svæðið. Eftir hálftíma kom hann upp á veg aftur og lagði af stað inn í á hjá Áreyjum og ég á dólaði á eftir honum á benzanum.  Síðan þegar við erum búnir að keyra í gegnum Reyðarfjörð og komnir í gegnum hringtorgið þá hringir hann í mig og biður mig um að fara á undan sér og opna hlið til að komast niður í ánna þannig að ég steig benzann framúr vöubílnum og komst vel framúr og aðrir bílar eltu en höfðu samt ekki í við benzann, síðan var ég kominn inn að hliðinu og bremsaði niður og setti stefuljósið á og hugsaði svo aðeins að kikja í baksýnisspegilinn áður en ég færi út og þá sá ég eitt stykki landcruiser sem að negldi á benzann á um það bil 100km hraða eða meir, allavega þá stoppaði hann ekki fyrr en 200 metrum lengra frá bensanum. Síðan kom doddi að þessu og svo lögregla og svoleiðis, það var tekinn skýrsla þar sem að hinn maðurinn sem að var að sunnan sagði alltaf við lögguna að þetta hefði verið mér að kenna því að ég hafi nauðhemlað og eg spurði hann bara hvar hann sæi þessi bremsuför eftir nauðhemlunina. Síðan fórum við doddi og náðum í kranabílinn og hífðum bensann upp á pallinn og fórum með hann á fáskrúðsfjörð og settum inn í skemmu. EN þetta stoppaði okkur ekki því að við fengum bara allt í einu camaro sem að við síðan fórum á yfir á norðfjörð og á ball.
Sunnudagurinn byrjaði þannig að við vöknuðum og elduðum okkar kjúklingavængi og borðuðum með góðri list. Síðan fór dagurinn í chill og enduðum svo á því að fara yfir á norðfjörð á peugot.
Dagurinn í dag, við vöknuðum horfðum á sjónvarp, náðum okkur í pitsu að borða og svo fór ég bara heim þar sem ég sit núna og horfi á cape fear.

Bless í bili
Pétur Steinn

» 4 hafa sagt sína skoðun

28.07.2006 17:42:19 / PéturSt

Allt sem þú lest er lygi

Já þá er maður nú byrjaður í rafmagninu aftur og er bara að plumma mig ágætlega eins og sagt er. en það eru allir að nöldra í mér yfir því hversu mikið eg vinni og þannig, vil ég bara minna fólk á að vinna er dyggð og maður er einnig nokk dæmdur eftir því hvernig maður vinnur. Núna er svona 20-26°C hiti úti og eg er að drepast. Bara svo að þið sem hafið áhuga vitið þá er ég að hugsa sterklega um að fara suður í næsta mánuði pg ef ekki þangað þá allavega norður.
Ég er ekkert búinn að spá hvar ég verð um verslo þannig að ykkur er frjálst að koma koma koma koma koma koma koma koma koma koma koma koma koma með uppástungu um það hvert ég ætti að fara.

Ég er farinn út í steikinguna og enda svo sjálfsagt á fáskrúðsfirði um helgina því að það eru náttúrulega franskir dagar um helgina, geggjað stuð, allir upp í bílana núna og bruna austur.

kveðja barbapabbi

» 2 hafa sagt sína skoðun

23.07.2006 18:08:34 / PéturSt

hæ aftur

Já ég kláraði ekki alveg að blogga í gær. Ég lenti í svaka ævintýri á föstudagin þegar ég og þorgeir frændi minn vorum að reka niður staura í garðinum hjá ömmu okkar þegar eitthvað flýgur á þorgeir og stingur hann í höndina, Við förum inn og kreistum þetta í tætlur og förum svo aftur út og ætlum að halda áfram, þá hendi eg jarnkarlinum niður og þá kemur eitthvað og flýgur á hausinn á mér, við förum svo að horfa í kringum okkur og tökum eftir því að það sveima svona  40-50 geitungar við eina þúfu. Við fórum inn og fengum okkur kaffi og gerðum stríðsáætlun. Eftir það var haldið út með opinn brúsa af bensíni og hann lagður fyrir framan búið, síðan kveiktum við í bensíninu og veltum því yfir holuna sem að búið var í, næst náðum við í fötu af dieselolíu og grilluðum þessi helvíti almennilega.

Talandi um grill þá fórum við herdís upp í Egilstaði í Bónus og keyptum okkur grillkjöt og meðlæti og ég fékk að kaupa mér spareribs. Við fórum svo aftur niðureftir og fórum að undirbúa matinn. Síðan grilluðum við og gjörsamlega átum yfir okkur, vilborg og ragnheiður, vonkonur herdísar komu og borðuðu hjá okkur.

En já svo í dag er búið að vera bara steikjandi sól og ég vil taka það fram að hún Guðrún Hildur er átján ára í dag og óska ég henni alls hins besta.

Takk fyrir Pétur Steinn

» 1 hafa sagt sína skoðun

23.07.2006 00:14:25 / PéturSt

Góða kvöldið gott fólk.

Nú kemur að einhverskonar bloggfærslu. Eg er buinn að vera í sumarfríi frá rafvirkjun síðustu tvær vikur á með an gerðist ég vörubílstjóri hjá Vögg ehf.  Það var bara mjög gaman. Þetta koma mér nokk á óvart hvernig þessi vinna væri og hún sýndi mér líka hversu ótrúlega ótilitssamir ökumenn fólksbíla eru, þeir gera manni sko ekki auðvelt fyrir í umferðinni, ótrúlegt að þegar maður kemur keyrandi fullestaður með malarvagn og er örugglega yfir 50tonn að þyngd að fólk skuli svína fyrir mann í beygjum og snarhemla fyrir framan mann til einskis. Manni var oft orði heitt í hamsi  en það er sko eitthvað sem að má ekki vera í umferðinni.
Já ég lenti líka einu sinni í því að keyra valtara og maður sá ekki skýrt það sem eftir var af deginum, allt hristist bara.
 Það sem var samt best við þetta að það var sól alla fyrri vikuna og það skemmdi sko ekki fyrir manni útivinnuna. Síðan gisti eg alltaf hjá ömmu og afa út á brimnesi, það var alveg yndislegt, fá alltaf góðan mat, alltaf einhvern bakstur í kvöldkaffi og svoleiðis, leið bara eins og þegar ég var lítill og var á sumrin í sveitinni.

» 1 hafa sagt sína skoðun

03.07.2006 23:24:35 / PéturSt

loksins á ný

Góða kvöldið gott fólk

Það er sko búið að vera frábært veður hérna til að vera að vinna úti en neeeeeeeeeeeeeeiiiiiiiiiiiiiiiiii eg er að vinna inni alltaf, verð örugglega hvítari en næpa þegar sumarið verður búið. Nei nei eg er að fara í smá frí frá rafvirkjuninni í næstu viku og far aað keyra vörubíl fyrir frænda minn á fáskrúðsfirði.
Það gengur svo ekkert hjá mér að reyna að finna mér bíl, er reyndar svolítið skotinn í einni hondu accord type-s, rauð, keyrð 31þús, árg'04.

á Sunnudaginn var KFF(Knattspyrnufélag Fjarðarbyggðar) var að spila á móti val í visabikarnum, þeir töpuðu nú tvö núll en það var nú vel sloppið.

ég og pabbi erum að fara að búa til sólpall hérna við húsið og ég ætla að setja rafmagní hann og svoleiðis. ÞAð verður fínt að liggja þarna í sólinni sem er alltaf hérna fyrir austan, annað en fyrir sunnan og norðan.

Það er Geitungabú í garðinum hjá mér og þeir eru bunir að stinga nágrannakonu mína einu sinni.

Eg man nú ekki neitt meira í bili og muna bara reyna blogga aftur snemma

Kv. Pétur Steinn

» 5 hafa sagt sína skoðun

18.06.2006 03:20:29 / PéturSt

18.júní

Já góðan daginn mínir bloggþyrstu aðdáendur(haha endur)

Ég hef ákveðið að henda niður nokkrum stöfum í tilefni dagsins.

*Fór ekki á bíladaga:(
*Er buinn að vera að vinna inn á reyðarfirði:)
*Það er búið að vera meira en 20°C síðustu 3daga og þá er ekki þægilegt að vinna:S
*Fór á rúntinn í Fox smábíl;)
*Það var athyglisvert:!:
*Fór ekki á bíladaga:cry:
*Langar í nýjan bíl:cry:
*Er að hugsa um að fara í sveitina að eyrnamerkja kálfa og svo að herfa nýrækt:haha:
*I want to break free:^)
*Lagið dance commander með electric six er snilld8)
*Fór ekki á bíladaga:evil:
*Veit ekki hvað ég á að skrifa

Þá er það nú komið í bili, látið mig bara vita ef það vantar eitthvað meira og ég reyni að redda því um leið

bless í bili
Pétur Steinn


» 5 hafa sagt sína skoðun

20.05.2006 17:12:43 / PéturSt

I'm back

Já er nú ekki kominn tími til þess að skella niður eins og einu bloggi.

Já eg veit að það er liðin alveg heil skítleg eilífð síðan að ég bloggaði
síðast en það hefur bara ekkert sniðugt verið að gerast svo að maður nenni
að blogga eða hafi tíma til þess frekar. Ég var í endajaxlatöku í gær og þar
af leiðandi hef ég ekki getað borðað neitt í dag. Tannlæknafjandinn þurfti
að skera mig upp til þess að komast að þessari ljótu tönn sem var grafin
þarna einhverstaðar undir tannholdinu og var svo heila eilífð að ná henni upp
með allskonar töngum og járnkarli.

Upp á síðkastið hefur nú ekki mikið verið að gerast hjá mér fyrir utan vinnuna
bara og síðan þegar maður fer í sveitina og þannig. Það er náttúrulega ekki
mikið að gerast hérna í þessu frábæra plássi.

Enn ráfar hugur manns til bílakaupa og maður er nú buinn að vera að spá í nokkrum
gerðum og þannig og valið hjá mér stendur nú í
Hondu Accord type-s sem er rúm 190 hp
Mözdu 6 sport sem er rúm 170hp
subaru impreza wrx sem er 230hp.
Endilega kommentið og segjið mér ykkar skoðanir á þessu eins og lit og þannig og
endilega stingið upp á einhverju og hjálpið mér aðeins.

Og já mér finnst það alveg yndislegt að Silvía Nótt hafi ekki komist áfram og
einnig finnst mér það skammarlegt hvernig hún er að haga sér þarna sem fulltrúi
íslensku þjóðarinnar

Kveðja Pétur Steinn


» 11 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2